Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Samgöngur innan svæðis

    Bílaleigur

    Fjöldinn allur er af bílaleigum um allt land. Sumar eru hluti af alþjóðlegum keðjum, aðrar í einkaeigu. Það getur verið mismikill verð- og gæðamunur á milli bílaleiga og því æskilegt að skoða vel alla valmöguleika.

    Ferjur

    Nokkrar ferjur ganga milli lands og þeirra eyja sem eru við Ísland. Einnig hefur alþjóðlega ferjan Norræna viðdvöl á Íslandi, en hún leggur að á Seyðisfirði.

    Rútuferðir

    Rútur ganga um allt landið. Sumar leiðir er ekið allan ársins hring, en aðrar eru aðeins opnar yfir sumartímann. Hægt er að nálgast kort sem sýna allar rútu- og strætisvagnaferðir um  landið, meðal annars á upplýsingamiðstöðvum ferðamála.

    Almenningssamgöngur

    Strætisvagnar ganga daglega um allt höfuðborgarsvæðið og þeir eru einnig með áætlunarakstur út á land. Hægt er að kaupa sérstaka miða til að nota í strætisvagnana eða kort í mismunandi verðflokkum, sem henta fólki sem notar strætisvagnana mikið.

    Almenningssamgöngur á Suðurlandi

    Innanlandsflug

    Á Íslandi eru nokkur flugfélög sem sinna bæði alþjóðlegu flugi og innanlandsflugi. Hægt er að bóka flug á heimasíðum þeirra eða í gegnum síma.

    Leigubílar

    Hægt er að nálgast leigubíla í þéttbýli á flestum stöðum landsins. Þeir eru allir með mæli og rukka bæði fast upphafsgjald og mínútugjald sem leggst þar ofan á.

    Húsbílar og ferðabílar

    Finndu hér hvar þú getur leigt húsbíl á Suðurlandi.

    Hjólaleigur

    Hjólreiðar eru ódýr, heilnæmur og ekki síst umhverfisvænn ferðamáti. Víða um land er hægt að leigja hjól til lengri eða skemmri tíma.