Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Veitingahús

    Urmull veitingastaða er um allt land í öllum verð- og gæðaflokkum og því af nógu að taka fyrir alla. Hvort sem fólk hefur áhuga á heilsufæði eða einhverju minna heilsusamlegu, erlendri eða innlendri matargerð, ætti að vera hægur leikur að finna eitthvað gómsæti.

    Kaffihús

    Þau finnast um allt land. Mörg þeirra í höfuðborginni og stærri þéttbýliskjörnum en sum má finna á ólíklegustu stöðum til dæmis í  bragga úti í móa eða í skúr niðri við sjó. Verð og úrval er afar mismunandi.

    Skyndibiti

    Margir smærri matsölustaðir bjóða upp á smurt brauð, súpur eða íslenskan heimilismat. Frábær kostur fyrir þá sem kjósa óformlega og heimilislega veitingastaði.

    Barir og skemmtistaðir

    Í flestum þéttbýliskjörnum eru krár og á stærri stöðum eru þær margar. Í mörgum stórum byggðarlögum eru einnig skemmtistaðir eða klúbbar af ýmsum gerðum og gæðum. Þeir sem hafa gaman að slíku ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

    Taktu með/Heimsending

    Sumir veitingastaðir eru með heimsendingarþónustu eða bjóða viðskiptavinum upp á að sækja matinn.