Upplýsingar um verð
Jazz undir fjöllum
Jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum
20. - 21. júlí 2024
Jazz undir fjöllum, árleg jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, verður haldin í tuttugasta og fyrsta sinn yfir helgina 20. - 21. júlí. Í ár fara tónleikarnir fram í Freya Café í Samgöngusafninu í Skógum. Ókeypis er inn á tónleikana og reiknað með að gestir geti komið og farið að vild á meðan á tónleikunum stendur.
Fyrri hátíðir í Skógum hafa fengið frábæra aðsókn og góða dóma. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að njóta góðrar og fjölbreyttrar tónlistar í tengslum við lifandi náttúru Íslands eins og hún gerist fegurst. Aðstandendur hátíðarinnar eru Skógasafn og Sigurður Flosason. Hátíðin nýtur stuðnings Rangárþings eystra, Tónlistarsjóðs og Skógasafns.
Dagskráin er eftirfarandi:
Laugardagur 20. júlí kl. 15:00 - 17:00
ES Sextett og Marína Ósk
Leiknar verða þekktar söngperlur sveifluáranna en einnig áratuganna sem á eftir fylgdu ásamt frumsömdu efni eftir Marínu og aðra hljómsveitarmeðlimi, í nýjum útsetningum eftir meðlimi hljómsveitarinnar.
Sunnudagur 21. júlí kl. 15:00 - 17:00
Majken Christiansen kvartett
Majken Christiansen er ein vinsælasta jazz söngkona Noregs. Með henni spila Magne Arnesen á píanó, Andreas Dreier á kontrabassa og Thorsten Ellingsen á trommur.