Björg Halldórsdóttir formaður ferðafélags Árnesinga kynnir "Leyndar perlur í nágrenninu" á Bókasafni Árborgar, Selfossi fimmtudaginn 12. september kl. 17:00.
Ný deild í Ferðafélagi Íslands, Ferðafélag Árnesinga, var stofnað á Selfossi þann 12. mars 2009. Ferðafélag Árnesinga beitir sér fyrir ferðalögum innanlands, einkum um sunnanvert landið, kynnir gönguleiðir og eflir möguleika og virkni fólks á öllum aldri í gönguferðum og annarri útiveru.