Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands
Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldinn 12. maí kl 13:00 - 15:00.
28.04.2021
Fundurinn verður að þessu sinni rafrænn vegna þeirra fjölda- og fjarlægðartakmarkanna sem eru í samfélaginu.
Drög að dagskrá
- Fundarstjóri opnar fundinn og kynnir fyrirkomulag kosninga
- Kynning á frambjóðendum til stjórnarsetu fyrir hönd Ferðamálasamtaka Suðurlands, kosning opnar
- Ársreikningur 2020, yfirferð – Björg Árnadóttir, formaður stjórnar
- Helstu verkefni 2021 - Dagný Hulda Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
- Kynning og umræður um stofnun Áfangastaðastofu á Suðurlandi - Dagný Hulda Jóhannsdóttir og Björg Árnadóttir
- Kosningu lýkur og ný stjórn kynnt
- Tilnefning skoðunarmanna ársreiknings
- Önnur mál
Skráningarhlekkur verður sendur á póstlista markaðsstofunnar.