Árshátið Markaðsstofu Suðurlands
Þann 5 apríl mun Markaðsstofa Suðurlands halda árshátíð og aðalfund sinn. Að þessu sinni verður aðalfundur og árshátíðin haldin á Hótel Stracta, Hellu. Dagskrá dagsins er með hefðbundu sniði líkt og undanfarin ár.
Dagskrá:
11:30 Aðalfundur
Formaður stjórnar opnar fundinn, Björg Árnadóttir
Yfirlit ársins 2018 og verkefna- og fjárhagsáætlun MSS 2019 - Dagný H. Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri MSS
Ársreikningur 2018 – Björg Árnadóttir, formaður stjórnar MSS
Kosning og skipun nýrrar stjórnar, tilnefning skoðunarmanna ársreiknings – Dagný H. Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri MSS
Önnur mál
13:30 - 15:30 Málþing
Áfangastaðurinn Suðurland – Upplifun og umhverfi
Setning málþings
Dagný H. Jóhannsdóttir,framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands
Hvernig mun ferðaþjónustan breyta samfélagi og menningu á Suðurlandi?
Þorvarður Árnason, forstöðumaður Rannsóknarseturs HÍ á Hornafirði
Draumaáfangastaðurinn Suðurland – Hvert stefnum við?
Laufey Guðmundsdóttir, verkefnastjóri Áfangastaðaáætlunar Suðurlands – DMP
Ferðaþjónn, hvað er nú það? - Kynning á nýrri námskrá frá Fræðslunetinu – símenntun á Suðurlandi
Sólveig R. Kristinsdóttir, verkefnisstjóri
Súpufundir Markaðsstofu Suðurlands – kynning á vorfundum
Anna Valgerður Sigurðardóttir, verkefnastjóri Markaðsstofu Suðurlands
Kaffihlé
Markaðssetning áfangastaða og mikilvægi samvinnu og þátttökuvilja fyrirtækja í því ferli
Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknarmiðstöð ferðamála
Startup Tourism – Upplifun og reynsla
Smári Stefánsson, The Cave People og Rannveig Ólafsdóttir, Iceland Bike Farm
Fundarstjóri: Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra
15:45 - Örferð um svæðið
Árshátíð Markaðsstofu Suðurlands
Um kvöldið skemmtum við okkur svo saman yfir þriggja rétta kvöldverði, skemmtun og tónlist.
19:00 - Fordrykkur í boði Markaðsstofunnar
19:30 - Borðhald hefst
Matseðill kvöldsins:
Forréttur: Humarsúpa
Aðalréttur: Nautalund með kartöflugratíni, portobello sveppum & timiansósu
Eftirréttur: Súkkulaði Brownies
Veislustjórar kvöldsins verða þeir Bergþór Pálsson og Albert Eiríksson
Happdrætti með veglegum vinningum!
Að borðhaldi loknu verður partýstemning með trúbadornum Hlyn Ben
Skráningarfrestur er til fimmtudagsins 28. mars og fer skráning fram hér
Nánari upplýsingar síma í 560 2044 og tölvupóst fannar@south.is
Að taka þátt í öllum deginum kostar aðeins 10.900 kr. á mann (aðalfundur, málþing, örferð, kvöldverður og skemmtun).
Stracta Hotels er með tilboð á gistingu þetta kvöld:
Eins manns herbergi með morgunverði: 12.900 kr.
Tveggja manna herbergi með morgunverði: 14.900 kr.
Til að panta gistinguna þarf senda póst á info@stractahotels.is og taka fram að hún sé fyrir árshátíð Markaðsstofu Suðurlands
Við hvetjum alla til að skrá sig sem fyrst, allan daginn er flott dagskrá og er þetta kjörinn vettvangur til að hittast og hafa gaman saman!
Hér er hægt að skoða myndir frá gleðinni 2018 :)
Hlökkum til að eiga með ykkur frábæran dag og kvöld !