Austast á Kaupmannstúninu er Sjóminjasafnið á Eyrarbakka. Það var stofnað af Sigurði Guðjónssyni skipsstjóra á Litlu-Háeyri einkum í því skyni að bjarga síðasta áraskipinu sem smíðað var á Eyrarbakka frá eyðileggingu. Áraskipið Farsæll er í dag aðalsafngripur Sjóminjasafnsins á Eyrarbakka en einnig geta gestir fræðst um skipasmiðinn, mismunandi veiðiaðferðir og margvíslegt annað sem tengdist sjávarútvegi við Suðurströndina fyrr á tímum.
Opnunartími:
1. maí - 30. september: opið alla daga 11:00-17:00
Yfir veturinn er opið eftir samkomulagi.