Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands

    Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldin þann 5. maí næstkomandi á Hótel Örk í Hveragerði, klukkann 13:30.

    Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands verður haldin þann 5. maí næstkomandi á Hótel Örk í Hveragerði, klukkann 13:30. 

    Dagskrá: 

    • Formaður opnar fund og tilnefnir fundarstjóra​
    • Fundarstjóri kynnir fyrirkomulag fundar og kosninga​
    • Kynning á frambjóðendum til stjórnarsetu fyrir hönd Ferðamálasamtaka Suðurlands, kosning opnar​
    • Aðdragadinn og vegferðin að hlutverkum Áfangastaðastofu ásamt yfirliti yfir árið 2021 og helstu verkefni 2022 - Dagný Hulda Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, verkefnastjóri Áfangastaðaáætlunar​
    • Ársreikningur 2021, yfirferð – Katrín Sigurðardóttir, formaður stjórnar​
    • Kosningu lýkur, talning atkvæða – Kaffihlé​
    • Ný stjórn og skoðunarmenn ársreiknings kynnt​
    • Önnur mál​

    Fundastjóri verður Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis.

    Ritari fundarins verður Nejra Mesetovic, verkefnastjóri Markaðsstofu Suðurlands.

    Fræðsluerindi og árshátíð Markaðsstofunnar verða haldin að loknum aðalfundi - sjá nánar um dagskrá og upplýsingar um skráningu er að finna hér.