Ætla stjórnmálin að sitja hjá? // Opinn fundur á Selfossi 17. október
Í aðdraganda alþingiskosninga standa Samtök ferðaþjónustunnar fyrir opnum fundum um stöðu ferðaþjónustunnar í öllum kjördæmum.Tilefnið er að ræða stöðu ferðaþjónustunnar í hverju kjördæmi og þau tækifæri og áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í þeirri vaxandi atvinnugrein sem ferðaþjónustan er. Ætla stjórnmálin að nýta þau tækifæri sem í ferðaþjónustunni felast á næsta kjörtímabili eða sitja hjá?
Mánudaginn 17. október kl. 20.00, verður fundur í Suðurkjördæmi á Hótel Selfossi. Þeir sem ekki hafa tök á að mæta á fundinn geta fylgst með honum í beinni útsendingu á www.saf.is og í kjölfarið sýndur á sjónvarpsstöðinni N4. Það er afar mikilvægt að við sem lifum og hrærumst í ferðaþjónustunni nýtum tækifærið og mætum á fundina!
Með góðum kveðjum,
Samtök ferðaþjónustunnar