Ný síða Markaðsstofa Landshlutanna
Markaðsstofur landshlutanna hafa opnað sameiginlega heimasíðu.
06.11.2015
Markaðsstofur landshlutanna hafa opnað sameiginlega heimasíðu.
Markaðsstofur landshlutanna eru sex talsins, á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi, Austurlandi, Reykjanesi og á Suðurlandi.
Hlutverk þeirra er að samræma markaðs- og kynningarmál í ferðaþjónustu, sjá um útgáfumál, móttöku blaðamanna ásamt beinni markaðssetningu og vinna að vöruþróun í ferðaþjónustu.
Markaðsskrifstofurnar starfa í samvinnu við fyrirtæki í greininni, ferðamálasamtök, atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og fl.
Fyrirtæki og stofnanir með samstarfssamninga við markaðsstofurnar eru 780 og 65 sveitarfélög.
Markaðsstofurnar eru reknar í nánum tengslum við upplýsingamiðstöðvar.
Heimsækja má heimasíðuna hér