Tafir á umferð á Gullhringnum vegna fjárrekstra
Föstudaginn 9. sept og laugardaginn 10. sept má búast við umferðartöfum á eftirtöldum vegum í Biskupstungum vegna fjárrekstra.
Föstudaginn 9 .sept
Biskupstungnabraut (vegur 35) , milli Gullfoss og Geysis frá kl: 11:30 til 13:30.
Skeiða- og Hrunamannavegur (vegur 30) við Gýgjarhól milli kl.: 14:00 og 15:30.
Einholtsvegur (vegur 358) frá Kjarnholtum að Tungnaréttum frá kl:16:00 fram á kvöld.
Laugardaginn 10. sept
Biskupstungnabraut (vegur 35) frá Vatnsleysu að Múla frá kl:13:00 og fram eftir degi.
Einholtsvegur (vegur 358) frá Tungnaréttum að Gýgjarhólskoti frá kl:13:00 og fram eftir degi.
Líklegt er að mestu tafirnar gætu verið á milli Gullfoss og Geysis en þar verða björgunarsveitarmenn að stjórna umferð !