Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands 15.okt

    Aðalfundur Markaðsstofu Suðurlands vegna ársins 2019 verður haldinn fimmtudaginn 15.október kl 13.00. Fundurinn verður að þessu sinni rafrænn vegna þeirra fjölda- og fjarlægðartakmarkanna sem eru í samfélaginu.

    Dagskrá:

    • Fundarstjóri opnar fundinn og kynnir fyrirkomulag kosninga
    • Kynning á frambjóðendum til stjórnarsetu fyrir hönd Ferðamálasamtaka Suðurlands, kosning opnar
    • Ársreikningur 2019, yfirferð – Björg Árnadóttir, formaður stjórnar
    • Yfirlit ársins 2019 og helstu verkefni og áherslur 2020 – Dagný Hulda Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri
    • Kosningu lýkur og ný stjórn kynnt
    • Tilnefning skoðunarmanna ársreiknings
    • Önnur mál

    Fundastjóri verður Laufey Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Suðurlands

    Ritari fundarins verður Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, verkefnastjóri Markaðsstofu Suðurlands

    Skráningarhlekkur verður sendur á póstlista markaðsstofunnar.