Hleðsla rafbíla - Styrkur Orkusjóðs
Ísorka er að bjóða öllum sérstakt tilboð á hleðslustöðvum sem vilja koma upp hleðslulausnum við húsakynni sín ásamt 50% afslátt af öllum þjónustugjöldum til tveggja ára.
Hleðslustöðvar auka þjónustu við ferðamenn, starfsmenn og aðra á svæðinu. Þær eru einnig gríðarlegt aðdráttarafl fyrir fólk sem er á bíl með tengli og með því að setja hleðslustöðina í rekstrarkerfi Ísorku er hún sýnileg í gagnagrunni Ísorku sem telur um 1400 skráða notendur hérlendis. Þegar stöð er tengd í Ísorku kerfið fer hún einnig sjálfkrafa í aðrar reikiþjónustur og gagnagrunni sem notendur hafa aðgang að t.d. Hubject, plugsurfing og Garmin. Hleðslustöðvarnar eru gagnvirkar og geta þannig nýst sem tekjulind ásamt því að auka samkeppnisforskot gististaða.