Kynningarfundir - Sóknarfæri ferðaþjónustunnar á Suðurlandi
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga og Markaðsstofa Suðurlands efna til kynningarfunda vegna verkefnisins Sóknarfæri ferðaþjónustunnar. Um er að ræða nýtt áhersluverkefni Sóknaráætlunar Suðurlands á vegum Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, til stuðnings ferðaþjónustunni á Suðurlandi vegna COVID 19.
Dagskrá:
- Sóknarfæri ferðaþjónustunnar á Suðurlandi – Þórður Freyr Sigurðsson, sviðsstjóri þróunarsviðs SASS
- Markaðsherferð fyrir innlendan markað – Dagný H. Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands
- Umræða og önnur mál
Verkefnið Sóknarfæri ferðaþjónustunnar er þríþætt og felur í sér markaðsátak fyrir Suðurland gagnvart innlendum ferðamönnum í sumar, úthlutun verkefnastyrkja til ferðaþjónustufyrirtækja sem og sérhæfð ráðgjöf og fræðsluverkefni til stuðnings atvinnulífinu.
Fundirnir verða með rafrænum hætti, fyrir viðkomandi svæði, á eftirfarandi tímum:
“Austursvæði” A-Skaftafellsskýsla
Miðvikudagur 29. apríl kl. 14:00
Hlekkur á FB viðburð: https://www.facebook.com/events/2607314879549274/
Join Zoom Meeting: https://us02web.zoom.us/j/84300626206?pwd=dERYclc2RmdyeVg0eVlHY1BsaEhSQT09
---
“Vestursvæði” Árnessýsla
Fimmtudagurinn 30. apríl kl. 10:00
Hlekkur á FB viðburð: https://www.facebook.com/events/230244438302614/
Join Zoom Meeting: https://us02web.zoom.us/j/86354842328?pwd=WjVGdHN0aXNxdmlxb01yTCtKODJsZz09
---
“Miðsvæði” Rangárvalla- og V-Skaftafellssýsla og Vestmannaeyjar
Fimmtudagurinn 30. apríl kl. 13:00
Hlekkur á FB viðburð: https://www.facebook.com/events/558855081488316/
Join Zoom Meeting: https://us02web.zoom.us/j/88256103936
Fundirnir verða fjarfundir þar sem öllum þátttakendum gefst kostur á virkri þátttöku og fara þeir fram í gegnum ZOOM fjarfundarbúnað.
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila og sveitarstjórnaraðila til að taka þátt í fundinum. Hlekk á fundinn má finna á hverjum viðburði/fundi fyrir sig sem og hér fyrir ofan.