Landshlutabæklingur 2016/2017 fyrir Suðurland kominn út
Markaðsstofa Suðurlands hefur gefið út landslutabækling 2016-2017. Upplýsingabæklingurinn er helgaður ferðaþjónustufyrirtækjum á Suðurlandi sem eru aðilar að Markaðsstofunni.
29.09.2016
Markaðsstofa Suðurlands hefur gefið út landslutabækling 2016-2017. Upplýsingabæklingurinn er helgaður ferðaþjónustufyrirtækjum á Suðurlandi sem eru aðilar að Markaðsstofunni. Bæklingurinn er veglegur og prýddur mörgum fallegum myndum og í honum er hægt að nálgast helstu upplýsingar um náttúruperlur Suðurlands, þéttbýliskjarna og ferðaþjónustuaðila. Hægt verður að nálgast bæklinginn á öllum helstu upplýsingamiðstöðvum landsins. Einnig verður bæklingurinn settur á vef Markaðsstofunnar á PDF formi innan skamms.