Ný stjórn kjörin og tilnefnd á aðalfundi Markaðsstofunnar
Það var stór dagur hjá Markaðsstofunni föstudaginn 13. apríl sl. en þá var haldinn aðalfundur, málþing og síðan árshátíð um kvöldið á Hótel Laka við Kirkjubæjarklaustur.
Aðalfundurinn var haldinn á Hótel Laka og var vel sóttur. Björg Árnadóttir formaður stjórnar opnaði fundinn og Dagný H. Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri MSS fór síðan yfir verkefni sl. árs og helstu áherslur 2018. Þá kynnti Björg Árnadóttir ársreikning ársins 2017. Ferðamálasamtök Suðurlands kjósa sína fulltrúa í stjórn á aðalfundi og buðu fjórir fulltrúar sig fram, en Elfa Dögg Þórðardóttir sem var sitjandi stjórnarmaður dró framboð sitt til baka á aðalfundi. Er henni þökkuð vel unnin störf í þágu Markaðsstofunnar. Tveir efstu í kjörinu tóku sæti í aðalstjórn en sá sem hlaut þriðju flest atkvæðin tók sæti sem varamaður.
Stjórn Markaðsstofu Suðurlands 2017/2018 skipa:
Bjarni Freyr Báruson – Ferðamálsamtök Suðurlands
Björg Árnadóttir – Visit South Iceland ehf
Gunnar Þorgeirsson – Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Páll Marvin Jónsson – Ferðamálasamtök Suðurlands
Sigurlaug Gissurardóttir – Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu
Sólrún Helga Guðmundsdóttir – Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Varamenn:
Anna María Ragnarsdóttir – Ferðamálafélag Austur Skaftafellssýslu
Bjarni Guðmundsson – Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
Katrín Sigurðardóttir – Visit South Iceland ehf
Kristín Ýr Hrafnkelsdóttir – Ferðamálasamtök Suðurlands
Í kjölfar aðalfundar var síðan haldið málþing undir yfirskriftinni “Skiptir ferðaþjónustan máli fyrir samfélagið?“. Eftir fundahöld tók gleðin völd þegar farið var í örferð um svæðið þar sem Kristbjörg Hilmarsdóttir stjórnarformaður Friðar og Frumkrafta sagði frá því helsta sem er að gerast í Skaftárhreppi um þessar mundir og gestir kynntu sér ferðaþjónustu á svæðinu.
Um kvöldið var síðan mikið fjör á árshátíð þar sem saman kom fólk úr ferðaþjónustu á Suðurlandi, sjá nánar um daginn hér.