Vegvísir í ferðaþjónustu – Fundur á Selfossi mánudaginn 12. október
Á dögunum var nýr vegvísir fyrir ferðaþjónustuna og að Stjórnstöð ferðamála hafi verið sett á laggirnar.
10.10.2015
Á dögunum var nýr vegvísir fyrir ferðaþjónustuna og að Stjórnstöð ferðamála hafi verið sett á laggirnar.
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Samtök ferðaþjónustunnar boða til kynningarfundar um vegvísinn á Selfossi mánudaginn 12. október. Á fundinum munu Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra og Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri SAF kynna vegvísinn og nýja sýn í ferðaþjónustunni.
Fundarstjóri verður Ásta Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri sveitarfélagsins Árborgar.
Fundurinn fer fram í Tryggvaskála og hefst kl. 17.00.
Heitt á könnunni – allir velkomnir!
Nánari upplýsingar um vegvísi í ferðaþjónustu er að finna á vefsíðunni www.ferdamalastefna.is