Á Suðurlandi ætti öll fjölskyldan að geta fundið eitthvað við sitt hæfi að gera hvort sem það er í dagsferð eða ef dvalið er til lengri tíma á svæðinu. Hér eru nokkrar hugmyndir um hvað fjölskyldan getur gert saman.
Fjölskylduferð í Uppsveitum
Börn á öllum aldri skemmta sér vel í Uppsveitunum, þar er margt hægt að gera.Þar eru dýragarðar, hestaferðir, opin gróðurhús, opin fjós, opinn sveitabær, gönguferðir í skóginum eða upp á fell. Útivist, sund, veiði, golf, fótboltagolf, frisbígolf, ærslabelgur, leikvellir og íþróttavellir.GistingTjaldsvæði, hótel, gistiheimili, bændagisting, farfuglaheimili, sumarhús, íbúðir og fjallaskálarwww.sveitir.iswww.south.is
Afþreying Söfn/sögustaðir/sýningar fyrir fjölskylduna
Laugarvatnshellar, heimsókn í helli með leiðsögn
Margmiðlunarsýning í Fræðslumiðstöðinni á Hakinu á Þingvöllum
Skálholt, sögustaður, sumartónleikar, gönguleiðir
Sólheimar Grímsnesi, listhús og “Menningarveisla”
Sólheimar Hrunamannahreppi, Samansafnið, minjasafn og fornbílar
Virkjanir, sýningar opnar á sumrin
Ljósafosstöð
Útivist / Gönguferðir/stígar
Á Þingvöllum er skipulögð dagskrá á sumrin, gönguferðir
Skipulagðar gönguferðir í Hrunamannhreppi á sumrin
Þeir sem hafa áhuga á fuglum geta fundið fjölmargar tegundir í uppsveitunum.
Veiðileyfi er víða hægt að fá og renna fyrir lax eða silung í ám og vötnum.
Gönguleiðir í skógum: Í Þrastaskógi, Haukadalsskógi og á Laugarvatni eru merktir göngustígar. Á Laugarvatni og í Haukadal eru bálhús og hreinlætisaðstaða.
Í nágrenni Laugarvatns og nágrenni Flúða eru merktar gönguleiðir.
Fjöll og fell til fjallgöngu fyrir alla fjölskylduna.
Kort og leiðir að finna á www.sveitir.is
Dýragarðar
Slakki í Laugarási, húsdýragarður. Dýragarðurinn í Slakka á Facebook
Sveitaheimsókn
Efsti-Dalur ferðamannafjós þar sem fylgjast má með mjöltum, ís- og ostagerð ásamt því að borða veitingar beint frá býli á veitingastað og í ísbúð.
Garðyrkjubýlið Friðheimar, fræðsla um jarðhita og garðyrkju og veitingar í gróðurhúsi. Hestasýningar skv. pöntun.
Hestar
Hestasýningar á Friðheimum fyrir hópa
Syðra-Langholt/ RidingTours South Iceland hestaleiga/ferðir
Geysirhestar hestaleiga/ferðir Kjóastöðum 2
Úthlíð hestaleiga
Efstidalur 2 hestaleiga
Myrkholt, hestaleiga/ferðir
Árbakki, hestaferðir
Sund - GufaSundlaugin Flúðum, Laugarvatni, Úthlíð, Reykholti, Borg, Hraunborgum, Laugarvatn Fontana Gamla laugin/Secret lagoon náttúrulaug - Hvammi Flúðum
Fótboltagolf Fótboltagolf nálægt Flúðum, Markavöllur LeikvellirLækjargarðurinn á Flúðum, ærslabelgur og frisbígolfÍþrótta- og leikvellir í öllum byggðakjörnum. Strandblak á Flúðum og Laugarvatni.
GolfFjölmargir góðir golfvellir eru á svæðinu og golfskálar sem selja veitingar. Efra-Sel Flúðum, Kiðjaberg, Öndverðanes, Hraunborgir, Geysir Haukadal, Úthlíð, Dalbúi Miðdal.
Önnur afþreying
Laugarvatn Adventure fjölbreytt afþreying og útivist fyrir hópa
Útilífsmiðstöð skáta Úlfljótsvatni fjölbreytt afþreying
Litboltavöllur Bíldsfelli
Ferðir á Langjökul
Adrenalíngarðurinn á Nesjavöllum
Siglingar á Hvítá,
Áhugaverðir staðirÞingvellir, Gullfoss, Geysir, Kerið, Laugarvatn, Skálholt, Brúarhlöð, Þrastaskógur, Haukadalsskógur, Byggðakjarnar.MaturFjölbreyttir veitingastaðir af öllum gerðum, eitthvað fyrir alla. Uppsveitirnar eru sannkölluð matarkista og víða er hægt að kaupa grænmeti og alls kyns framleiðslu beint frá býli. Matarupplifun
Friðheimar tekið á móti hópum og einstaklingum í “Matarupplifun í gróðurhúsi” alla dagaFræðsla og veitingar
Efsti-Dalur ferðamannafjós þar sem fylgjast má með mjöltum, ís- og ostagerð ásamt því að borða veitingar beint frá býli á veitingastað og í ísbúð.
Beint frá býli
Litla Bændabúðin Flúðum, Garðyrkjustöðin Melar, opið allt árið fjölbreyttar vörur beint frá býli
Hólabúðin Laugardalshólum, kjöt, grænmeti og fleiri vörur.
Silfurtún Flúðum, jarðarber og grænmeti, Silfurber
Garðyrkjubýlið Friðheimar, “Litla tómatbúðin” grænmeti og fleiri vörur
Garðyrkjustöðin Ártangi plöntur, krydd og fleiri vörur
Garðyrkjustöðin Brúará Böðmóðsstöðum, grænmeti.
Garðyrkjustöðin Heiðmörk Laugarási, grænmeti
Uppsveitirnar eru kjörinn áfangastaður fyrir alla fjölskylduna. Gistimöguleikar eru af öllum gerðum. Fjölmargir góðir veitingastaðir og er hver og einn þeirra með sína sérstöðu. Áhersla er lögð á hollt og gott hráefni úr nærumhverfi enda eru Uppsveitirnar mikil matarkista.Velkomin í Uppsveitir Árnessýslu og njótið þess sem svæðið hefur uppá að bjóða.
Allar nánari upplýsingar má finna á www.sveitir.is og www.south.is Við erum tilbúin til að aðstoða við að gera heimsóknina ánægjulega.
View
Fjölskylduferð í Rangárþing ytra
Rangárþing ytra hefur margt upp á að bjóða fyrir fjölskylduna. Í sveitarfélaginu er að finna ýmsa afþreyingu fyrir fjölskyldur, gistingu, veitingar og margt fleira. Hvort sem um er að ræða stutt stopp, dagsferð eða dvöl til lengri tíma þá er alltaf gaman að stoppa á Hellu.
Gisting:
Gisting á hótelum, gistiheimilum, sumarbústöðum, veiðiskálum og tjaldsvæðum.
Afþreying:
Frisbígólf
Golf
Sund – Hellu og Laugalandi
Hestaleigur
Hellaskoðanir
Buggyferðir
Veiði
Fjöruferð í Þykkvabæ
Áhugaverðir staðir: Hekla, Landmannalaugar, hellar sem gaman er að skoða með fjölskyldunni og margt fleira. Á Hellu er að finna sundlaug sem hefur að geyma skemmtilegar rennibrautir og busllaug fyrir börnin. Einnig er frisbígolfvöllur í bænum og hægt að fá lánaða diska í íþróttahúsinu.
Matur: Veitingastaðir, bakarí, skyndibiti, kjöt- og fiskverslun – gott beint á grillið!
Endilega kynntu þér Rangárþing ytra enn betur og njóttu dvalarinnar með fjölskyldunni:
Hella og nágrenni
View
Fjölskylduferð í Mýrdalshrepp
Mýrdalshreppur hefur margt upp á að bjóða fyrir fjölskylduna. Fjöruferðir og fjallgöngur við einstakar náttúruperlur, góð tjaldsvæði í fallegu umhverfi, ævintýralega afþreyingu og fjölbreytta matsölustaði við allra hæfi. Í Vík er notaleg sundlaug með útsýni til Reynisdranga og folfvöllur á friðsælum reit við Víkurá.
Gisting:
Fjölbreytt gistiheimili
Sveitagisting
Hótel
Tjaldsvæði í Vík
Tjaldsvæði í Þakgili
Afþreying:
Hestaferðir í fjörunni
Hraunsýningin Icelandic Lava Show
Zipline
Jöklaferðir
Jeppaferðir
Gönguferðir og leiðir
Hjólaferðir og leiðir
Svifvængjaflug
Sundlaug
Sjóminjasafnið Hafnleysa
Kötlusetur, gestastofa Kötlu jarðvangs
Golfvöllur
Áhugaverðir staðir:
Sólheimajökull
Flugvélarflakið á Sólheimasandi
Dyrhólaey
Reynisfjara
Víkurfjara
Víkurþorp
Hjörleifshöfði
Þakgil
Ýmsar gönguleiðir
Matur:
Svarta fjaran veitingahús við Reynisfjöru
Suður-Vík veitingahús
Halldórskaffi
Smiðjan brugghús
Súpufélagið
Víkurskáli
Ströndin bar & bistro
Ice-cave veitingahús
Lava-café kaffihús
Ekki gleyma kíkinum, kannski sjáið þið Lunda! Endilega kynntu þér Mýrdalshrepp enn betur og njóttu dvalarinnar með fjölskyldunni!
Vík í Mýrdal
View
Fjölskylduferð í Skaftárhrepp
Í Skaftárhreppi er gott að vera og njóta, sjá ævintýri í hverjum hól og hraundrangi, fylgjast með fuglum á tjörn og læra um eldstöðvar, ösku, gíga og náttúruhamfarir af öllu tagi. Þar er næði til að upplifa náttúruna á eigin hraða; ganga, hlaupa, hjóla eða fela sig í skóginum og hugsa.
Gisting: Hótel, gistihús, smáhýsi, tjaldstæði, fjallaskálar og sumarhús.
Afþreying: Það er gaman að leika sér í skóginum á Klaustri. Þar er göngustígur langt inn í skóginn sem liggur að Sönghelli og upp á brúnina, þar sem er allt annar heimur. Þeir sem þora geta gengið yfir heiðina og niður hjá Stjórnarfossi, vaðið út í ána til að kæla tærnar og farið svo á Kirkjugólfið. Systrastapi er dularfullur, fullur af sögum. Boðið er upp á gönguleiðsögn og reiðhjólaferðir með leiðsögn sumarið 2020. Víða eru góðar leiðir fyrir þá sem vilja hjóla úti í náttúrunni á gömlum vegum. Á Klaustri er sundlaug með tveimur heitum pottum, líkamsrækt og þar er skólalóðin með sparkvelli, leiktækjum og ærslabelg. Frá sundlauginni liggur Krakkastígurinn sem er þrautabraut að gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem er sýning um mosa í öllum myndum og fleira spennandi. Þar fá menn bækur, bæklinga og upplýsingar til að geta verið eigin leiðsögumenn í sveitinni.
Áhugaverðir staðir: Það verða allir að skoða Fjaðrárgljúfur þar sem Justin Bieber tók danssporin, Dverghamra, þar sem dvergar búa í steinum og Landbrotshólana sem eru óteljandi en furðulegir og góður staður fyrir lautarferð. Kirkjugólfið þar sem gestir eiga að finna ákveðinn stein.
Matur: Veitingastaðir sem bjóða hamborgara, pitsur, grænmetisrétti eða þrírétta máltíðir með öllu tilheyrandi.
Í Skaftárhreppi er upplagt að skipuleggja útivist og náttúruskoðun. Fara með nesti að morgni hvort sem er á bíl, hjóli, eða gangandi. Hér er tækifæri fyrir fjölskylduna að vera saman og gleyma sér án þess að hafa áhyggjur af nokkrum hlut.
Kirkjubæjarklaustur
AÐ VERA OG NJÓTA - EKKI FARA OG ÞJÓTA
View
Fjölskylduferð í Ríki Vatnajökuls
Sveitarfélagið Hornafjörður býður upp á fjölbreytta afþreyingu, gistingu og mat við allra hæfi! Hornafjörðurinn tekur vel á móti allri fjölskyldunni og hér eru nokkrar tillögur að frábærum dögum í Ríki Vatnajökuls!
Gisting: Ríki Vatnajökuls býður upp á fjölbreytta gistimöguleika fyrir fjölskylduna, allt frá tjaldsvæðum og smáhýsum upp í fjölskylduvæna hótelgistingu.
Afþreying:
Skellið ykkur í fjallgöngu og heitu pottana á meðan börnin spreyta sig í ratleik í góðra vina hópi
Frisbí golf, fjöruferð og annað fjölskyldufjör í Hornafirðinum
Golfvöllurinn á Höfn. Frábær fjölskyldudagur og börnin spila frítt!
Hefurðu farið með börnin á stærsta jökul Evrópu og skellt þér í ferðalag um vetrarbrautina? Upplifðu ævintýrin í Ríki Vatnajökuls!
Kayak, klifur og annað jöklafjör....upplifðu bakgarðinn í Ríki Vatnajökuls!
Söfn, setur og sumarsmiðjur fyrir börn.
Matur: Fjölbreytt flóra veitingastaða sem bjóða upp á girnilega barnamatseðla, heimagerðar pizzur, samlokur og heimagerðan ís
Gisting: Tjaldsvæði, gistiheimili, hótel með fjölskylduherbergjum, sumarbústaðir o.fl.
Endilega kynntu þér Hornafjörðinn enn betur og njóttu dvalarinnar með fjölskyldunni:
Hornafjörður
View
Fjölskylduferð í Rangárþingi eystra
Rangárþing eystra er fjölskylduvænt sveitarfélag og ýmislegt í boði fyrir alla fjölskylduna. Í sveitarfélaginu má finna hina ýmsu afþreyingu, gistingu, veitingar og fleira sem að henta allri fjölskyldunni. Það má skipuleggja stuttar ferðir, dagsferðir og dvöl til lengri tíma og allir ættu að finna sér eitthvað skemmtilegt til dægradvalar.
Gisting:
Hægt er að finna ýmsa gistimöguleika bæði í dreif- og þéttbýli sem henta vel til að njóta þess besta sem sveitarfélagið hefur upp á að bjóða. Hótel, gistiheimili, sumarhús, smáhýsi, fjallaskálar og tjaldsvæði. Gistimöguleikar sem geta tekið á móti litlum og stórum hópum.
Afþreying:
Frisbígolf
Heilsustígur
Lava center
Skógasafn
Sund á Hvolsvelli
Kanó siglingar
Golf
Hestaleigur
Hellaskoðanir
Opinn landbúnaður
Fjöruferð í Landeyjafjöru
Skógarferð í Tumastaða- og Tunguskóg
Lautarferð í Þorsteinslundi
Áhugaverðir staðir:
Eyjafjallajökull, Þórsmörk, Skógafoss, Seljalandsfoss og Gljúfrabúi, Gluggafoss, Þorsteinslundur, hellaskoðun m.a. í Efra-Hvolshella, Steinahellir og Rútshellir. Frábær aðstaða til gönguferða í Tumastaða- og Tunguskógi. Á Hvolsvelli má finna sundlaug með heitum pottum, vaðlaug og rennibraut. Frisbígolf völlur er hjá íþróttamiðstöðinni og þar má fá lánaða diska og á Hvolsvelli má líka finna 15 stöðva heilsustíg sem gaman er að ganga eða hlaupa eftir.
Matur:
Veitinga- og skyndibitastaðir á Hvolsvelli sem og í dreifbýlinu í kring af öllum stærðum og gerðum. Einnig hægt að kaupa ferskt grænmeti, brauð og kjöt beint frá býli í Sveitabúðinni Unu á Hvolsvelli.
Verið velkomin í Rangárþing eystra og njótið þess að upplifa fallega náttúruna og skemmtilega afþreyingu í faðmi fjölskyldunnar.
Nánari upplýsingar á www.visithvolsvollur.is og www.south.is
Hvolsvöllur og nágrenni
View
Fjölskylduferð á Selfoss og nágrenni
Selfosssvæðið bíður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. Á svæðinu er að finna fjölda verslana, veitingastaða og gistimöguleika. Hvort sem þið viljið spila golf, renna fyrir fisk, róa kajak, fara á hestbak, heimsækja söfn, slappa af í sundi, hjóla eða ganga meðfram hraunfjöru og svörtum sandi þá getum við vel mælt með heimsókn á Selfosssvæðið.
Söfn/sögustaðir/sýningar
Bakkastofa
Bobby Fischer Safnið
Draugasafnið
Eldsmíðafélag Suðurlands
Icelandic Wonders
Íslenski Bærinn
Konubókastofa
Rjómabúið á Baugsstöðum
Sjóminjasafnið Eyrarbakka
Samkomuhúsið Staður Eyrarbakka
Stokkur Art Gallery - Stokkseyri
Veiðisafnið
Þuríðarbúð
Útivist – opin áhugaverð svæði
Baugsstaðir - gamla rjómabúið, hægt að panta opnun fyrir hópa
Flóaáveitan - áveitukerfi, inntak við Hvítá, gönguleiðir
Friðland í Flóa - fuglafriðland, fuglaskoðunarhús, gönguleiðir, þurrklósett
Hallskot - skógur, áningarstaður, hægt að leigja aðstöðu í húsum
Hellisskógur - skógur, hellir, gönguleiðir, áningarstaðir
Knarrarósviti - viti, hægt að panta opnun fyrir hópa
Ströndin - göngustígur milli Eyrarbakka og Stokkseyrar, áningarstaður
Urriðafoss - foss, áningarstaður
Þuríðarbúð á Stokkseyri - tilgátuhús, áningarstaður, hægt að panta opnun fyrir hópa
Afþreying
Bíóhúsið Selfossi
Frisbígolfvellir í Árborg
Geitabú, Skálatjörn
Golfvöllur, Svarfhólsvöllur, 9 holu, Selfoss
Hestamiðstöð á Sólvangi við Eyrarbakka
Hestaleiga, Bakkahestar, Eyrarbakka
Hestaleiga, Egilsstaðir 1, Flóahreppur
Kayaksiglingar og FATBIKE ferðir á Stokkseyri
Sund
Sundhöll Selfoss - 18 m. innilaug, 25 m. útilaug, barnalaug með þremur rennibrautum, heitir pottar, kaldir pottar, vaðlaug, vatnsgufa, sauna, World Class
Sundlaug Stokkseyrar - 18 m. útilaug, rennubraut, vaðlaug, tveir heitir pottar
Veitingar
Veitingastaðir
Fjöruborðið, Rauðahúsið, Riverside, Surf and Turf, Kaffi Krús, Krisp
Kaffihús / Bakarí
Almar bakari, Bókakaffið, BrimRót - Menningarhús, G.K. Bakarí, Sólvangur
Skyndibitastaðir
Domino's Pizza, Hamborgarabúlla Tómasar, Hlöllabátar, KFC, Pylsuvagninn, Skalli, Subway, Vor
Annað
Eldhúsið, Mömmumatur, Ísbúð Huppu, Krían Bar, Félagsheimilin í Flóahreppi - salir og eldhús fyrir hópa
Kynntu þér Selfosssvæðið enn betur og skoðaðu alla þá möguleika sem svæðið hefur upp á að bjóða.
Selfoss og nágrenni
View